Það þarf seiglu til að sigla og það þarf seiglu til að takast á við umhverfisbreytingar framtíðarinnar
Í forsvari fyrir Seiglurnar eru reyndar siglingakonur.
Þær eiga það sameiginlegt að hjörtu þeirra slá með umhverfismálum en jafnframt býr hver og ein yfir sérþekkingu og reynslu sem nýtist á sjó.
Í forsvari fyrir Seiglurnar eru reyndar siglingakonur.
Þær eiga það sameiginlegt að hjörtu þeirra slá með umhverfismálum en jafnframt býr hver og ein yfir sérþekkingu og reynslu sem nýtist á sjó.
Sigríður G. Ólafsdóttir, skipstjóriSigga skipstjóri er með alþjóðleg atvinnuréttindi fyrir skip allt að 45 metra, vélarvarðarréttindi og með meistarapróf í Umhverfis- og auðlindastjórnun þar sem hún hefur sérhæft sig í umhverfisfræðum hafs og strandsvæða.
Frá 11 ára aldri hefur Sigga stundað skútusiglingar víðsvegar um heiminn. Hún er kennari við Skipstjórnarskólann, eigandi ferðaþjónustu-fyrirtækisins Sóley Travel og móðir þriggja barna. Hennar markmið í lífinu er að finna póstkassann fyrir uppsagnarbréfið á tiltektar- og þvottastarfinu heima. |
Anna Karen JörgensdóttirAnna Karen lærði að sigla á unglingsárum og hefur stundað skútusiglingar síðan þá. Hún hefur m.a. unnið við siglinganámskeið barna, keppt á siglingamótum og hampað bikurum og medalíum í siglingum.
Anna Karen stundar siglingar og útvist með eiginmanninum og er í miðjum klíðum við að ala upp tvo fyrirmyndarunglinga og einn óþekkan páfagauk. Hún er grafískur hönnuður og hefur unnið við hönnun og markaðsmál undanfarin 26 ár. |
Ásta VilhjálmsdóttirÁsta er sjómannsdóttir og ólst upp við sjóinn. Lék sér gjarnan í fjörunni sem barn og hefur ávallt fundið frið og slökun við hafið. Með göngum við ströndina, siglingum og sjósundi. Hún kynntist skútusiglingum fyrir um 20 árum, á hlut í skútu með sambýlismanni sínum og hefur stundað siglingar og keppni síðan. Ásta hefur brennandi áhuga á náttúruverndar og umhverfismálum og stundar göngur og útivist.
Ásta er klæðskerameistari með meistaragráðu í listkennslu og starfar sem textílkennari. |
Guðrún Björk FriðriksdóttirGuðrún Björk er harðjaxl og fjörkálfur sem elskar að sigla. Hún kynntist siglingum fyrir fáeinum árum og hefur á skömmum tíma sótt sér bæði réttindi og reynslu í keppni og skemmtisiglingum. Henni finnst best að vera með hnéhlífarnar "frammá" og glíma við framsegl og spinnaker.
Guðrún starfar sem verkefnastjóri við Háskóla Íslands. |
Helena W ÓladóttirHelena er ævintýragjarn umhverfisfræðingur og kennari.
Helena er reynd í margs konar útivist, hlaupari, skíða- og siglingakona. Hún starfar sem sérfræðingur í sjálfbærni hjá KPMG en hefur margra ára reynslu af umhverfisstjórnun og menntun um loftlagsmál, sjálfbærni og náttúru. Helena var áhafnarmeðlimur í verkefninu eXXpedition Around the World 2019-2021. |
Katrín GuðmundsdóttirKatrín kynntist siglingum fyrir 25 árum og heillaðist strax af íþróttinni. Á tímabili sigldi hún og keppti með kvennaáhöfn en í dag er hún stoltur eigandi 30 feta skútu sem staðsett er í Danmörku og nýtir hvert tækifæri til að sigla við þarlendar strendur og víðar. Katrín nýtur þess að vera í íslenskri náttúru, hvort sem um er að ræða fjallgöngur eða hlaup. Búseta erlendis og störf við ferðaþjónustu vöktu frekari áhuga á umhverfismálum og náttúru landsins.
Katrín er félagsfræðingur að mennt og starfar sem framkvæmdastjóri Tannlæknafélags Íslands. Hún er gift og tveggja dætra móðir auk þess sem kötturinn Míó heldur henni upptekinni við uppeldið. |