Í megináhöfn Kvennasiglingar 2021 voru einnig þessar:
Bryndís Skúladóttir
Bryndís kynntist siglingum fyrir 10 árum og féll strax fyrir sportinu. Hún hefur siglt við Íslandsstrendur, á Miðjarðarhafinu og ferðast á skútu milli Grænlands og Íslands. Á milli siglinga hleypur hún um fjöll og dali, skíðar, hjólar og syndir.
Bryndís er umhverfisverkfræðingur með viðamikla reynslu af samstarfi við fyrirtæki og stofnanir um úrbætur í umhverfismálum. Í dag starfar hún á umhverfis- og skipulagssviði VSÓ og er amma í hlutastarfi.
Halla Mía Ólafsdóttir
Halla hefur hingað til talið sig til landkrabba en heldur nú til sjávar enda gjörn á að elta uppi ögrandi ævintýri. Hún er náttúruunnandi frá hjartarótum og hefur ferðast og búið víða um heim.
Halla er með meistarapróf í sjónrænni mannfræði og hefur síðustu ár sinnt fréttaöflun og dagskrárgerð fyrir RÚV. Hún er líka landvörður og hefur starfað sem slíkur á hálendi Íslands.
Halla er búsett á Ísafirði þar sem hún gerir upp tvö gömul hús, hleypur og skíðar. Halla ætlar að miðla myndum og sögum frá ferðinni og aðdraganda hennar.

Tara Ósk Markúsdóttir
Tara Ósk er enginn nýgræðingur á sjó þó svo hún sé yngst í áhöfninni. Hún hefur sundað siglingar eins lengi og hún man eftir sér en foreldrar hennar byrjuðu að taka hana með sér á kjölbáta þegar hún var aðeins þriggja ára. Hún hefur búið í bátnum Sæúlfi í þrettán ár og farið þrjár heils árs ferðir um Evrópu. Einnig hefur hún siglt styttri ferðir til Grænlands og hringinn í kring um Ísland. Tara keppir í kænusiglingum og hefur tekið þátt í kjölbátakeppnum. Um þessar mundir leggur hún stund á nám í vélstjórn.
Töru hefur alltaf fundist gaman að ferðast, bæði á landi og sjó.

Reykjavík-Ísafjörður
Gunna Lára
Gunna Lára er með nokkrar háskólagráður og ýmis starfsréttindi sem endurspegla áhuga hennar á öllu milli himins og jarðar. Hún er jarðfræðingur og umhverfis- og auðlindafræðingur, hefur smáskiparéttindi og leiðsögupróf svo eitthvað sé nefnt. Hún lætur sér fátt óviðkomandi varðandi náttúruvernd og hefur meðal annars verið talskona Kríuvarnarbandalagsins á Snæfellsnesi, og hefur miklar áhyggjur af stöðu sjófuglastofna og sjávarspendýra. Gunnu Láru hefur lengi dreymt um að læra að sigla og hún elskar að vera á sjó. Hún hlakkar því mikið til að verða gestaháseti á Esju og sigla frá Reykjavík til Ísafjarðar, fyrir Snæfellsnesið fagra þar sem hún býr.

Inga Rut
Inga Ruter nýgræðingur í skútusiglingum og verður þessi ferð frá Reykjavík til Ísafjarðar því frumraun hennar á því sviði. Hingað til hafa blak, hestamennska, útivist og ketilbjöllur skorað hærra þegar kemur að áhugamálum en hver veit hvað gerist næst. Inga Rut er byggingarverkfræðingur að mennt og er sviðsstjóri framkvæmdasviðs Faxaflóahafna en starfaði áður í mörg ár við hönnun á hafnarmannvirkjum. Umhverfismálin eru ofarlega í huga hennar og er lögð mikil áhersla á umhverfismál bæði á landi og sjó í starfsemi Faxaflóahafna. Inga Rut siglir frá Reykjavík til Ísafjarðar.

Sigríður
Sigríður er sjávarlíffræðingur og starfar hjá Umhverfisstofnun í teymi hafs og vatns. Í Kvennasiglingunni þreytir hún frumraun sína í skútusiglingum og er full tilhlökkunar. Umhverfismál eru Sigríði hugleikin og þá sérstaklega heilbrigði hafsins. Hún stundar hestamennsku og göngur með fjölskyldunni og er stolt amma tveggja barna. Sigríður siglir með Seiglunum frá Reykjavík til Ísafjarðar.

Þrúður
Þrúður hefur hingað til haldið sig að mestu á þurru landi, helstu kynni hennar við hafið er sjósund. En hún hikar sjaldan þegar spennandi ævintýri eru í boði oig hlakkar til að fá að vera þátttakandi í Kvenna- siglingunni 2021. Þrúður er innfæddur Selfyssingur og hefur öll sín fullorðinsár búið á höfuðborgarsvæðinu. Hún á tvö uppkomin börn, er grafískur hönnuður og hefur í næstum þrjá áratugi starfað á vettvangi hönnunar og markaðsmála. Önnur áhugamál hennar tengjast útiveru, heilsu, náttúru og ferðalögum. Sjómennskan er ekkert grín en að hennar mati er nauðsynlegt að fara að fara annað slagið út fyrir þægindahringinn og læra nýja hluti, fá ferskt loft í lungun, vind í seglin og taka eftir fegurðinni í umhverfinu.

Ísafjörður-Akureyri
Elín Björk
Elín Björk Jónasdóttir fékk sem barn að vera aðstoðarkona afa síns á trillu og sjá sérstaklega um að fylgjast með handfærarúllum og telja fiska. Hún sótti um stöðu háseta í þessari ferð til að kynnast siglingum á skútu, til að sjá landið frá nýju sjónarhorni og kynnast fleiri konum sem hafa áhuga á íslenskri náttúru, umhverfismálum og umhverfisvernd. Elín Björk er veðurfræðingur og loftslagsbreytingar eru henni mjög hugleiknar. Hér fær hún einstakt tækifæri til að miðla því sem hún kann um þau vísindi og læra mjög margt nýtt.

Melkorka
Melkorka Ólafsdóttir er tónlistarkona og ljóðskáld, náttúruhlaupari og náttúrubarn með hvalaþráhyggju. Hún hefur síðustu ár verið hugfangin af hafinu og tengslum kvenna við sjávarföllin. Hún er þakklátur félagi í sex kvenna ljóðakollektívinu Svikaskáldum og sjö kvenna flautudanshópnum viibru og hefur ofurtrú á kraftinum sem myndast í kvennahópum. Melkorka vildi taka þátt í Kvennasiglingunni vegna þess að hún dýrkar töffarakonur og elskar náttúruna, finnst það ævintýralega spennandi áskorun að læra að sigla og langar að nota tækifærið til að miðla með orðum og myndum þeim töfrum sem verða til í þessum einstaka leiðangri.

Sara
Sara hefur stundað hvalaskoðun frá 7 ára aldri og starfar nú sem framkvæmdastjóri Akureyri Whale Watching. Hún er með skipstjórnar- og vélarvarðarréttindi undir 15 metrum og siglir með ferðamenn í Eyjafirðinum. Henni finnst fátt skemmtilegra en að vera á sjó og hlakkar því til að sigla með seiglunum. Hún hefur gaman að öllu sem tengist útivist og er á róðrabrettum, brimbrettum, en fer þess á milli í fjallgöngur, á fjallahjól og snjóbretti.

Sveinborg
Sveinborg er ævintýragjörn útivistarkona, náttúruunnandi og jarðfræðingur sem heillaðist af hugsjóninni á bak við verkefni Seiglanna. Hún er liðtækur háseti eftir að hafa daðrað við siglingar nokkrum sinnum á lífsleiðinni, sem þátttakandi og leiðbeinandi á siglinganámskeiðum í Siglunesi og í leiðöngrum m.a. til Grænlands og Jan Mayen.

Akureyri-Húsavík
Gréta María
Gréta María ólst upp í nálægð við hafið og fjöllin á Flateyri. Hún er verkfræðingur og hefur látið til sín taka í umhvefismálum og samfélagsábyrgð fyrirtæ+kja. Þetta er fyrsta skútusigling Grétu Maríu sem í dag starfar hjá Brim og því standa málefni hafsins henni nærri.

Lára
Lára hefur sterka tengingu við hafið en sem barn fór hún oft með föður sínum niður á höfn að skoða bátana. Hún bjó í áratug austur á fjörðum þar sem nálægðin við hafið er mikil og kraftur hafsins sterkur. Á árunum 1978-1980 tók hún þátt ásamt eiginmanni sínum í sjórallý Snarfara þar sem siglt var hringinn í kring um Ísland. Hún var eina konan sem tók þátt í rallýinu öll þrjú árin. Lára er stolt af því að vera í hópi Seiglanna og fá að endurtaka það ævintýri sem það er að sigla hringinn í kring um landið.

Sigrún Arna
Sigrún Arna er náin fjölskyldunni og hún ver miklum tíma með barnabörnun-um tveimur og börnunum þremur. Dags daglega vinnur hún á skrifstofu Félags skipstjórnarmanna og er mjög spennt fyrir Kvennasiglingunni. Sigrún Arna er náttúruverndarsinni og sækir innblástur í náttúruna en hún er mikil prjónakona og rekur síðuna Náttúruprjón. M.a. hannaði hún fjarska góða Seigluvettlinga sem ylja munu Seiglunum á köldum vöktum á skútunni.

Húsavík-Eskifjörður
Adda
Arnfríður Eide Hafþórsdóttir er fædd og uppalin á Fáskrúðsfirði, er sjávarútvegsfræðingur að mennt og starfar sem verkefnistjóri atvinnu- og byggðaþróunar hjá Austurbrú ásamt því að vera varaformaður í félaginu Konur í sjávarútvegi. Adda elskar útivist. Hún reyndi reyndi að komast á sjó þegar hún var unglingur, en faðir hennar sem var á tímabili skipstjóri á frystitogara sagði við hana að "konur ættu ekki heima á sjó". Í dag horfir hann stoltur á dóttur sína á kafi í sjávarútveginum og haftengdum greinum. Öddu myndi ekki leiðast að geta sagt við hann að nú væri hún að fá tækifæri til þess að slást í hóp kvenna sem siglir á skútu hringinn í kring um landið!

Ásdís
Siglingar voru hluti af uppeldi Ásdísar Magnúsdóttur ásamt skíðamennsku. Hún fylgdi foreldrum sínum þegar Siglingaklúbburinn Vogur var stofnaður í Garðabæ og var hluti af þeim skemmtilega hópi sem stóð að Vogi í upphafi. Hópurinn sigldi reglulega saman og var farið í fjölskyldusiglingar allar Verslunarmannahelgar. það var því kærkomið tækifæri fyrir Ásdísi að fá að slást í hóp með Seiglunum og rifja upp þessa frábæru íþrótt. Ásdís er í dag lögfræðingur hjá Árnason Faktor sem sérhæfir sig í vernd hugverkaréttinda. Hún býr í Garðabæ ásamt eiginmanni sínum, fjórum börnum og hundinum Mosa. Draumurinn er að Siglingaklúbburinn Vogur verði endurvakinn.

Birna Kristín
Birna Kristín er grunnskólakennari en hefur einnig menntun og áralanga reynslu af textílhönnun og ferðaþjónustu. Hún fór fyrst á sjó 1975 til að sækja reka í Keflavík-norður og hefur mikla tengingu við sjóinn, var m.a. nokkrar vertíðir á grásleppuveiðum norðan við land. Birna eru umhverfismál hugleikin og hún hefur starfað sem landvörður á hálendinu um árabil.

Þorbjörg
Þorbjörg er með yngri Seiglunum í Kvennasiglingunni 2021. Hún er 21 árs nemi í heilbrigðis-verkfræði og hefur alltaf liðið best úti í náttúrunni. Nándin við sjóinn sem fylgir því að búa á Íslandi finnst Þorbjörgu dásamleg og þótt hún hafi reynslu af siglingum verður þátttakan í verkefninu hennar lengsta sigling til þessa. Hún stundar skíði, fjallgöngur, hjólreiðar og fleira og hana langar að leggja sitt af mörkum til þess að stuðla að verndun vistkerfa Jarðar.

Eskifjörður-Djúpivogur
Guðrún Arndís
Guðrún Arndís er fædd og uppalin á Höfn í Hornafirði en hún er viðskiptafræðingur að mennt og vann mörg ár í sjávarútvegi, hjá stóru útgerðarfyrirtækjunum. Nú er hún forstöðukona Sjávarútvegs- miðstöðvar Háskólans á Akureyri og eitt af verkefnum hennar þar er að stýra Sjávarútvegsskóla unga fólksins. Það er sumarskóli sem ætlaður er 13-15 ára ungmennum og þar fá þau fræðslu um möguleika til náms og starfa í sjávarútvegi. Guðrún Arndís á tvær dætur og á fimm barnabörn.

Hidda
Siglingar hafa lengi átt hjarta og hug Hiddu þó þær hafi lítið komist að í raunheimum síðustu ár. Hún var í siglingum sem barn og æfði kænusiglingar á tíunda áratugnum. Þá tóku við mörg sumur þar sem hún starfaði við siglingakennslu barna og unglinga bæði hér á landi og á meginlandinu. Dags daglega er Hidda framkvæmdastýra rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur þar sem nýsköpun og betri nýting auðlinda með minna umhverfisspor eiga hug hennar allan. Hún er líka stolt móðir þriggja skemmtilegra stelpna sem hún elskar að stunda hvers konar útivist með.

Hildur
Hildur er vélaverkfræðingur og kennari en hefur lengst starfað við framkvæmdir hjá Veitum og Orkuveitu Reykjavíkur. Nú stýrir hún stærsta framhaldsskóla landsins, Tækniskólanum, en þangað sækja einmitt skipstjórar og„ vélstjórar menntun sína. Það er mjög brýnt að fjölga þei konum í þessum greinum og þar með auka fjölbreytileika og jafna stöðu kynjanna á sjó. Þess vegna sótti Hildur um að taka þátt í Kvennasiglingunni. Þrátt fyrir að vera viss um að verða sjóveik hlakkar Hildur til að takast á við þessa áskorun og telur það mikinn heiður. Móttó Hildar í siglingunni er: „Ef ég get siglt, geta allar siglt!“

Þorbjörg Ólöf starfar sem verkefnisstjóri hjá Austurbrú. Hún hefur mikinn áhuga á alls konar útivist, hvort sem það er að sumri eða vetri og finnst fátt skemmtilegra en að lenda í ævintýrum. Sjórinn hefur lengi heillað Þorbjörgu, hvort sem það er er kajak sigling á lygnum firði, sjósund í sandfjörunni eða siglingar á hafi úti - enda er hún í stjörnumerkinu Fiskarnir!

Djúpivogur-Vestmannaeyjar
Corinna
Corinna er útivistar- og björgunarsveitarkona. Hún stundar sjósund, siglingar, göngur, hjólreiðar og fjallaskíði. Fyrir henni er Ísland draumaland en hún flutti til Íslands frá Austur-Þýskalandi árið 2000. Corinna reynir að lifa sem umhverfisvænustu lífi, draga úr neyslu og endurnýta, vera nægjusöm og láta duga. Corinna er orkubolti sem stefnir á að ljúka verklega skemmtibátaprófinu sem fyrst.

Diljá
Diljá fór á sitt fyrsta siglinganámskeið í Siglunesi árið 2012. Eftir námskeiðið gekk hún til liðs við vatnasportklúbbinn í Siglunesi og þá var ekki aftur snúið. Áhuginn kviknaði þar og í dag er þetta eitt það skemmtilegasta sem hún gerir. Diljá hefur unnið á siglinganámskeiðum í Siglunesi fyrir börn síðan sumarið 2019. Henni finnst skemmtilegast að sigla í sem versta veðri, því hvassara og því stærri öldur, því skemmtilegra. Það mun koma sér vel á leggnum sem Diljá siglir, en hann er sá lengsti á leiðinni, meðfram suðurströndinni frá Djúpavogi til Vestmannaeyja.

Líf
Líf Magneudóttir hefur alla sína ævi búið í hafnarborgum og þar vill hún helst vera og rækta villibarnið í sér. Hún tók pungaprófið eftir að hafa siglt frá Reykjavík til Þórshafnar í aftakaveðri á hundrað ára gömlum kútter og henni finnst best í heimi að mæta náttúruöflunum á hafinu. Líf er borgarfulltrúi Vinstri grænna og hefur um árabil látið sig mennta- og umhverfismál varða enda þykir henni vænt um bæði menn og náttúru. Siglingin með Seiglunum tvinnar marga þá þræði saman sem eiga hug og hjarta Lífar og svo fannst henni tími til kominn að fá að svala siglingaþránni á Austfjörðum!

Svava
Svava hefur mjög gaman af ferðalögum og velur sér gjarnan ótroðnar slóðir og þá skiptir verulegu máli að vera meðvituð um landið sitt og umhverfið. Svava fer gjarnan um landið á hestum, fótgangandi og á skíðum. Hún kafar í heitum sjó og hefur siglt skútu á suðlægum slóðum og er nú mjög spennt að fá tækifæri að kynna umhverfi hafsins og sigla við Íslandsstrendur þar sem sjór og vindar eru áskorun.