Seiglurnar hafa þegið boð Manhattan Yacht Club um að taka þátt í siglingakeppninni Lady Liberty Regatta 2023 sem haldin verður 8.-10. september við New York.
Markmið keppninnar er að vekja athygli á þátttöku kvenna í keppnissiglingum og hvetja konur til að taka þátt í íþróttinni. Seiglurnar eru eina keppnisáhöfn Íslands sem eingöngu er skipuð konum og þeim er heiður að því að sigla fyrir Íslands hönd í keppninni í haust. Þau sem vilja styrkja liðið til þátttöku er velkomið að hafa samband við Seiglurnar eða Siglingasamband Íslands. |
Í efri röð frá vinstri: Katrín, Ásta og Anna Karen.
Neðri röð frá vinstri: Sigríður skipstjóri, Helena og Guðrún Björk.
Neðri röð frá vinstri: Sigríður skipstjóri, Helena og Guðrún Björk.