Að sigla umhverfis Ísland á seglskútu er draumur margra kvenna. Leiðin sem Seiglurnar ætla að fara er um 1400 sjómílur að lengd og ferðalagið mun taka rúmlega þrjár vikur. Kvennasiglingin hefur viðkomu í sjö höfnum víðsvegar um landið þar seiglurnar hitta heimafólk, bjóða í heimsókn í skútuna, standa fyrir samræðu um umhverfismál hafsins, slást í hóp annarra skúta og fleira. Nánari dagskrá verður kynnt á samfélagsmiðlum.
Siglingaáætlun er eftirfarandi - en hafa verður í huga að veður, vindur og straumar ráða mestu um hvernig ferðinni miðar:
Siglingaáætlun er eftirfarandi - en hafa verður í huga að veður, vindur og straumar ráða mestu um hvernig ferðinni miðar:
- Reykjavík - Ísafjörður - Lagt úr Reykjavíkurhöfn þann 13. júní og komið til Ísafjarðar þann 15. júní
- Ísafjörður - Jökulfirðir - Akureyri - Frá Ísafirði 17. júní og komið til Akureyrar 21. júní
- Akureyri - Húsavík - Brottför þann 23. júní og komið samdægurs til Húsavíkur
- Húsavík - Eskifjörður - Siglt frá Húsavík þann 25. júní, komið á Eskifjörð 27. júní
- Eskifjörður - Djúpivogur - Frá Eskifirði 29. júní. Komið á Djúpavog 30. júní
- Djúpivogur - Vestmannaeyjar - Brottför 1. júlí og komið í Vestmannaeyjar þann 3. júlí
- Vestmannaeyjar - Reykjavík - Siglt frá Vestmannaeyjum þann 5. júlí og komið í Reykjavíkurhöfn þann 6. júlí